Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Sunnudagur, 2. september 2007
Morgunblaðið 6. febrúar 1949
Óli H Þórðar er að vinna að rannsóknarverkefni um öll banaslys í umferðinni frá upphafi bílaumferðar hér á Íslandi. Hann er með aðstöðu hjá okkur RNU mönnum og kemur alltaf reglulega út úr kompunni sinni með gamlar fréttir úr mogganum, oft og tíðum áhugaverð lestning.
Um daginn koma hann með frétt til mín þar sem sagt var frá bruna bílaverkstæðis á Blönduósi. En verkstæði þetta rak afi minn heitinn. En þessi bruni fór ansi illa með ömmu og afa því tryggingum var eitthvað áfátt. Neyddust þau til að flytja í bragga uppi í sveit sem varla hélt vatni og vindi eftir brunann og gerðust þau bændur á Orrastöðum sem er bær í eyði rétt við Húnavelli.
Talandi um bændur. Á síðunni sem Óli prentaði út fyrir mig var nokkuð um áhugaverðar fréttir, ein var á þessa leið og er bráðfyndin lestning.
Tillögur Sjálfstæðismanna um landbúaðarvjelar og jeppa samþykktar á Alþingi
______________
Alþýðuflokkurinn eini flokkurinn, sem greiddi atkvæði gegn því
______________
Alþingi samþykkti s.l. föstudag þingsályktunartillögur þær sem þingmenn úr sveitakjördæmum Sjálfstæðisflokksins fluttu um innflutning jeppabifreiða og landbúnaðarvjela. Allir flokkar þingsins greiddu tillögunum atkvæði nema kratarnir, sem sýndu skilning sinn á þörfum landbúnaðarins með því að leggjast gegn innflutningi þessara nauðsynlegu tækja.
Landbúnaðarvjelar
Tillaga um landbúnaðarvjelarnar var samþykkt með smávægilegum breytingum. Er hún á þessa leið:
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hlutast til um að á næsta ári verði fluttar til landsins landbúnaðarvjelar eftir því sem þörf krefur, svo sem jarðýtur, skurðgröfur og aðrar stórvirkar vjelar, til að fullnægja þörf búnaðarfjelaga og ræktunarsambanda. - Einnig minni dráttarvjelar og aðrar búfjelar, eftir því sem frekast er unnt. Jafnframt verður sjeð fyrir nægjanlegum varahlutum.
Leggur Alþingi fyrir ríkisstjórn og fjárhagsráð að fullnægja þörf þeirri, sem hjer er um rætt, áður en leyfður er innflutningur á bílum.
Að sjálfsögðu ber að skilja síðari hluta tillögunnar þannig að þar sje einungis átt við aðrar bifreiðar en jeppabifreiðar.
Útúrsnúningur Alþýðublaðsins í gær byggist því aðeins eins og svo oft áður á fákænsku kratanna.
Var tillagan samþykkt með 27 atkvæðum gegn 7.
750 jeppabifreiðar
Tillagan um innflutning jeppa bifreiða er svohljóðandi:
"Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hlutast til um, að á næsta ári verði fluttar til landsins eigi færri en 750 jeppabifreiðar og hliðstæðar bifreiðar til landbúnaðarþarfa, sem eingöngu verði seldar bændum, enda verði settar strangar reglur, sem tryggi að þær haldist í sveitum landsins í eigu þeirra er landbúnað stunda.
Jafnframt verði sjeð fyrir nægum innflutningi varahluta til þessara og annara atvinnubifreiða."
Var tillagan samþykkt með 27 atkvæðum gegn 7.
Eins og kunnugt er var tillaga Sjálfstæðismanna um að fluttir yrðu inn á þessu ári 600 jeppar en nefndin hækkaði töluna upp í 750 og studdist þar við tillögu Búnaðarfjelags Íslands, sem gert hafi þá áætlun að flytja þyrfti inn 1500 til þess að fullnægja þörfum bænda.
Skotið á Alþýðublaðið fer þarna fremst í flokki, en á þessari síðu var annað skot Morgunblaðsmanna á aðra fréttamiðla.
Reikningsútkoma Þjóðviljans nr. 2
Í þrídálka fyrirsögn Þjóðviljans í gær segir að "Íhaldið hafi samþykt að gera als ekkert fyrir atvinnulausa verkamenn"
Samkv fjárhagsáætlun bæjarins sem Þjóðviljamenn gera að umtalsefni og hafa fyrir framan sig, eru eftirfarandi samþyktir gerðar:
1. Að bæjarsjóður leggi til verkl. framkv. 20 milj.
2. Fyrirtæki bæjarins leggi fram 8 milj.
3. Auk þess virkjun Írufoss í Sogni og þar fari í verklaun 7 milj.
_____________
Samtals 35 milj.
En eftir útreikningi Þjóðviljamanna er 20,000,000+8,000,000+7,000,000 = 0 (núll). - Skyldi hæfileiki Þjóðviljans til að skýra rjett frá staðreyndum ekki reynast vera mjög nálægt núllpunktinum? Eða hvernig verður þetta fyrirbæri blaðamennskunnar skýrt á annan hátt?
Ég sprakk úr hlátri þegar ég las þessar fréttir, það var greinilega miklu skemmtilegra að lesa blöðin í gamla daga. Ég tek alla stafsetnigu upp eftir greinunum, líka kommunar í milljónunum.
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Reykjavíkurborg og börn
Hér fer lýsing af þriðjudagsmorgninum eftir páska hjá mér.
6:50:
Drengurinn vaknar og farið er á ról. Konan liggur veik og getur sig lítið bært, enda ólétt af þriðja barninu. Við feðgarnir förum upp og fáum okkur morgunmat. Smá sjálfstæðisbarátta kemur upp eins og venjulega. Dóttirin vaknar svo eilítið seinna og kemur upp til okkar í morgunmatinn. Þetta ferli gengur yfirleitt ekki alveg snurðulaust fyrir sig, og þá síður eftir svona frí. Ég reyni yfirleitt að glugga í blöðin yfir kaffibollanum á þessari stund, þannig að ef ég blogga einhverja steypu um eitthvert málefni í framtíðinni, þá er það v.þ.a. ég hef einungis náð að lesa hálfa fréttina. Þá vitið þið það.
8:20
Fjöldi ekinna kílómetra: 0, staðsetning: Víkurbakki 24
Allir komnir í útiföt og hersingin fer út í bíl. Það tekur smá tíma að koma bílnum af stað, enda er svolítið gaman að labba um í snjódrífunni sem kom um nóttina og pabbi þurfti að skafa.
8:35
Fjöldi ekinna kílómetra: 4, staðsetning: Hraunbær
Allir út úr bílnum hjá dagmóður drengsins.
8:55
Fjöldi ekinna kílómetra: 9, staðsetning: Gvendargeisli
Kominn í leikskóla dótturinnar. Hann er uppi við Reynisvatn, en þar bjuggum við áður. Það hefur skapað okkur talsverð vandræði að fá ekki dóttur okkar flutta um leikskóla. Við skiptum um húsnæði í janúar, og höfum þurft að fara með stelpuna alla þessa leið í nú 3 mánuði.
9:55
Fjöldi ekinna kílómetra: 20, staðsetning: Flugvallarvegur
Kominn í vinnuna. Ég reyndar stoppaði í Byko, það skýrir c.a. 20 min.
Ég ek 20 km á leið í vinnuna í stað 6 km. Þetta eru því 28 km aukalega á dag (fram og til baka), þetta gerir um 6 kg af koltvísýringslosun aukalega vegna manneklu á leikskólum. Samkvæmt fjármálaráðuneytinu þá fá fást greiddar 68 kr. Fyrir hvern ekinn km á einkabíl. Það gera 1904 kr í aukalegan kostnað vegna aksturs á dag. Að auki kemur gríðarlegur kostnaður vegna þess tíma sem í þetta fer ásamt þeirri áhættu sem á börnin er lagt að sitja í bíl alla þessa vegalengd.
Jajja, en okkur hjónunum skilst að flutningurinn fáist í gegn um næstu mánaðarmót, frábært. Þetta tímabil hefur þá staðið í ca þrjá og hálfan mánuð, þetta gerir um 400 kg af losun koltvísýrings, 133.280 kr í ferðakostnað, stress, time is money og svo mætti áfram telja. En í batnandi borg er best að lifa, nú er bara næst að ráðast á lóðaskort og samgöngur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)